Missjónið „póstur á dag“

Undanfarið ár var á margan hátt sérstakt fyrir mig, eins og reyndar flest ár. Öll ár líða með sínum áskorunum, uppákomum, sigrum og töpum, tárum og gleði. Það er bara misjafnt hvað það er sem fellur í þessi box hverju sinni og hvort það bjóði fram afgerandi lausnir eða hindranir fyrir nána og fjarlæga framtíð.

Ég hef átt þessa bloggsíðu í mörg ár. Ég opnaði hana á sínum tíma af því að ég ætlaði að skrifa reglulega. Það tókst ekki. Aðallega vegna þess að ég hafði enga stefnu og vissi ekki alveg hvert ég ætlaði með hana. Núna veit ég það. En það er spurning hvort ég nái að fylgja því eftir. Við sjáum til.

Ég veit að þetta hljómar eins og nýársheit en það er það ekki. Ég set mér ekki slík, né set ég mér almennt einhver markmið eða áætlanir. Slíkt fyrir mér er eins og að setja snöru utan um eigin háls og reyna svo að hengja sig ekki í henni. Setur á þig óraunhæfar kröfur og gefur enn eitt tilefni til sjálfshaturs og niðurrifs. Ég einfaldlega hef sýn sem ég vil uppfylla. Ég er að þróa sköpunarverk. Á leiðinni lendi ég svo oft í stíflum og fatta kannski að sýnin var ekki eins og ég gerði mér í hugarlund. Stundum missi ég sjónar eða bara áhugann á henni og ákveð að nenna henni ekki. Stundum verða fyrirstöður sem geta verið hinar fáránlegustu. Ég hætti. Það gerist.

Þess vegna ætla ég mér ekki mikið með þessa síðu. Ef hún verður eitthvað þá verður hún eitthvað. Annað ekki. Ég er hinsvegar búin að lofa sjálfri mér að skrifa eitthvað á hverjum degi til að heila sjálfa mig upp úr kulnun á lífinu. Þetta er hluti af endurhæfingarferli. Sjálfsheilun. Ef einhver önnur sál hefur gagn af, þá fagna ég því.

Ég er líka að prófa mig áfram í uppsetningu efnis á vefnum og þessi síða er svolítið líka til þess að þróa það. Stíll og allskonar mun því breytast og (vonandi) bætast eftir því sem fram líða stundir.

Ein færsla á dag út árið. Við sjáum hvernig það fer. Góðar stundir.

Ég mun annars byrja árið á að endurlesa og endurupplifa bell hooks, sem lést í síðasta mánuði. Þar er farin önnur gagnrýnisrödd á ríkjandi valdakerfi samfélagsins og því fullt tilefni til að bergmála hana sem mest út í heiminn. ❤ Ég vil hér með hvetja sem flest ykkar til þess.

Leave a comment