Í frjálsu falli

Af því að ég hef lofað sjálfri mér því að setja hér inn einn pistil á dag þá verða „off“ dagarnir mínir tónlistardagar. Þá daga skrifa ég frá hjartanu um hvernig mér líður og finn lag til þess að segja afganginn af því sem ég er hugsa.

Í dag er ég lyfjalaus (endurnýjun á lyfseðli eitthvað slow, þetta kerfi er óþolandi) svo það mátti búast við að orkan myndi ekki endast út daginn, en ég er alltaf svo svakalega vongóð. Vefjagigtin náði mér þegar ég var í miðri innkaupaferð. Ég hefði kannski ekki átt að álpast í búð vitandi þetta, en það er þá alla vega til matur. 🙂 Það er eitthvað.

Ég tók í dag fyrsta skrefið í að klára MA gráðuna mína og get vonandi farið að hefja þá göngu á ný að byrja á lokaverkefninu mínu. Ég hlakka til. Það er líka eitthvað.

Ég er með þónokkuð langan to-do lista sem ég þarf í rólegheitum að vinna niður til þess að koma öllu á réttan kjöl. Ég bið því lífið að vera mér milt á næstunni svo ég nái því. So far, so good. Af gefinni reynslu er það eitt helsta tilefni til þakklætis. Takk.

Dudley Perkins er ljóðrænn snillingur sem öll ættu að kynna sér. Þegar ég heyrði þetta lag fyrst á Rawkus mixteipi varð ég algerlega heilluð og að eignast allar plöturnar hans er markmið. Þetta lag er samt alltaf í uppáhaldi. Textinn er magnaður og undirspilið fangandi. Þetta er lag sem grípur þig í hjartað og lætur þér líða vel í frjálsu falli.

Ást og friður.

Dudley Perkins – Falling

Rain come down, rain come down
Rain come down, rain come down

I see unnecessary death
I see lives just gone and went
I see souls out of control
I see the earth’s pain
I feel the earth’s pain
I see the powers of manipulation in a powerful way
I see the sleepwalkers who walk asleep during the day

I watch how they do the music, I watch how they do the children
I see wars, I see famine, I see pestilence
I see disease, rape, incest, racism, I see these things
I seen what the lack of knowledge can do to a civilization
I’ve seen what laziness can do to a civilization (lazy people)
When you don’t stand up for your own

Go ahead and keep beating around the bush, beating around the bush
I see with my own two eyes also and take care for what I see
Believe me, I’ve seen a lot
I participated in wars
I’ve seen so many, so many things
With the help of us could have been set right

Don’t you wanna go to the moon also?
Don’t you wanna enhance your intelligence?
Don’t you wanna stand up for your own?
Don’t you wanna see with your own two eyes?
Only you can lift you up, by the will of God
The powers that be, the energy within your soul
I hang on the edge of this universe, singing off key
Talking too loud and bracing myself to cushion the fall
I shall tumble into deep space
Never in this form or with this feeling
To return to earth, it is not tragic

I shall spiral through the black hole losing skin, limbs
Internal organs, searing my naked soul
Landing in the next galaxy with only my essence, embracing myself
As I fall into the ill-minded mode

Leave a comment